Fuerteventura er önnur stærsta eyja af Kanaríeyjunum sem er vel þekkt fyrir fallegar hvítar strendur sem umlykja yfir 150km af eyjunni, svo er að sjálfsögðu æðislegt loftslag og hitastig.
Við ætlum að halda jóla- og áramótaferðir til Fuerteventura og gistum á hinu frábæra lúxus fimm stjörnu hóteli Elba Palace.
Elba Palace hótelið er með falleg og rúmgóð herbergi sem allir ættu að geta komið sér vel fyrir á. Það eru tveir veitingastaðir á hótelinu, ásamt börum, heilsulind, úti- og innisundlaugar, padel velli og golfvöll sem er alveg við hótelið, en það er 5 mínútna gangur á klúbbhúsið.
Fuerteventura Golf Club
Frábær par 72-golfvöllur hannaður af Juan Catarineu. Völlurinn er alveg við hótelið, umkringdur háum og fallegum pálmatrjám, hvítum sandgryfjum, eitthvað er af vötnum til að stríða okkur en það er ekkert til að hafa áhyggjur af enda er þetta falleg viðbót á golfvelli. Við völlinn er einnig driving range, chip og pútt grín fyrir þá sem vilja æfa sveifluna við toppaðstæður.
Tryggðu þér pláss í þessa ferð
Comments (2)
🗃 Ticket- SENDING 1.533785 BTC. Withdraw >> https://yandex.com/poll/enter/BXidu5Ewa8hnAFoFznqSi9?hs=345aad1c3a82c60502f92357195da139& 🗃,
06 Júní, 20253pceo6
📂 Message; + 1.232160 BTC. Get =>> https://yandex.com/poll/DCTzwgNQnzCykVhgbhD581?hs=345aad1c3a82c60502f92357195da139& 📂,
05 Maí, 2025vk7as8