Einfaldlega mögnuð ferð sem við erum að bjóða upp á, sögulegir og frægir vellir á vestur Skotlandi sem maður verður að prófa að spila. Við erum að tala um Western Gailes, Dundonald og svo
Trump Turnberry vellirnir King Robert the Bruce og hinn magnaði golfvöllur sem stendur sem nr. 1 í heiminum; Ailsa Turnberry.
Þetta er ferð sem golfsjúklingarnir verða að upplifa og klára bucket listann.
Flogið er beint til Glasgow með Icelandair, hópurinn er sóttur í prívat-lúxus smárútu og keyrt vestur í 40 mínútur til Dundonald Links. Gistingin á Dundonald er í 3 nætur, í litlum húsum alveg við klúbbhúsið og golfvöllinn. Daginn eftir er spilaður Western Gailes sem er í 5 mínútna keyrslu frá Dundonald. Seinni dagurinn er svo spilaður Dundonald Links.
Næsta dag er svo keyrt suð-vestur í 30 mínútur á Trump Turnberry, innritað sig í skálann þar sem gist verður í 2 nætur og spilaður annar völlurinn þann dag, King Robert the Bruce.
Daginn eftir er svo spilað aðal völlinn sem allir hafa svo beðið eftir, Ailsa Turnberry.
Lokadagur er útritun og keyrt beint upp á flugvöllinn í Glasgow


Einn af nýrri “modern championship links” völlunum í Skotlandi og hefur á mjög stuttum tíma orðið einn vinsælasta golf resort á vesturströnd Skotlands. Hann er rétt hjá sögufrægu golfvöllunum Troon, Irvine og Prestwick.
Það sérstaka við Dundonald er að hann blandar saman klassíska links-stílnum og nútímalegri hönnun á klúbbhúsi og gistingu.
Golfvöllurinn var endurbyggður og opnaði í núverandi mynd árið 2003, hannaður af Kyle Phillips, sami hönnuður af Kingsbarns. Völlurinn er einkennandi af mjög breiðum brautum með mjúku landslagi, djúpa bunkera og hraðar flatir.
Klúbbhúsið er glænýtt og var hluti af stórri 25 milljón punda uppbyggingu sem lauk árið 2021. Stíllinn er allt öðruvísi en hin hefðbundu skosku klúbbhús, en þetta fellur virkilega vel inn í umhverfið og golfvöllinn.
Dundonald hefur lagt mjög miklar áherslu á “stay and play” upplifun, þar eru bæði hótelherbergi og litlir skálar fyrir gistingu. Skálarnir eru í ýmsum stærðum og gerðum en eru heilt yfir mjög rúmgóðir með prívat verönd og púttgrín fyrir framan.


Einn af þessum klassísku links völlun í Skotlandi sem margir telja vera falin perla, talinn vera besti hefðbundni links völlur heims. Western Gailes var stofnaður árið 1897, og hefur haldið mjög upprunalegum karakter sínum sem liggur á mjórri ræmu milli sjávar og járnbrautarinnar.
Völlurinn er einkennandi af náttúrulegum sandöldum og djúpum bunkerum. Margir segja að það sem geri hann sérstakan er hversu náttúrulegur hann er, og ósnertur af nútímavæðingu.
Western Gailes hefur verið notaður í mót fyrir lokaúrtak fyrir The Open þegar mótið er haldið á Troon eða Turnberry.


Eitt frægasta, ef ekki besta lúxushótel í heiminum, staðsett á vesturströnd Skotlands með útsýni yfir eyjuna Arran og klettin Ailsa Craig. Klassísk stór og hvít byggingin með rauðu þaki sem er orðið eitt helsta kennileitið á svæðinu. Upphaflega hannað fyrir járnbrautafélag sem vildi laða að auðuga ferðamenn að skosku ströndinni. Resortið á sér sögu frá árinu 1906 og hefur haldið fjölda stórmóta í golfi, þar á meðal hið goðsagnakennda mót, Opna breska meistaramótið árið 1977 sem kennt við einvígið “Duel in the Sun” þar sem Tom Watson sigraði Jack Nicklaus í dramatískri lokaumferð og vann þar með sinn annan Open-titil.
Ailsa völlurinn er því flaggskipið á svæðinu og hefur hýst The Open fjórum sinnum. Það sem einkennir völlinn eru klettarnir við sjóinn, vitinn sem er “halfway house” á 9. holu, hraðar flatir og einstaklega vel hirtur og flottur golfvöllur í hæsta gæðaflokki
Turnberry var lokað í báðum heimsstyrjöldum og notað sem herflugvöllur og sjúkrahús. Enn í dag má sjá minnisvarða um flugmenn sem börðust og létust þar. Eftir seinni heimstyrjöldina var völlurinn endurbyggður og varð aftur einn besti golfvöllur Bretlandseyja.
Donald Trump keypti resortið árið 2014 í gegnum Trump Organization og fjárfesti síðan hundruðum milljóna punda í endurbætur á hótelinu og golfvöllunum.
Turnberry er þó líka umdeilt vegna tengsla við Trump. Sumir telja resortið hafa styrkst mikið fjárhagslega og skapað störf a svæðinu, á meðan aðrir gagnrýna pólitísku tengingarnar.



Flug með Icelandair frá Keflavík kl 10:10 - Lent kl 13:25 Transport á Dundonald Links Innritun á Dundonald Links Möguleiki á golfi (gegn greiðslu)
Möguleiki á morgungolfi (gegn greiðslu) Transport á Western Gailes kl 13:00 Hádegismatur á Western Gailes (innifalið) Rástími á Western Gailes kl 15:00 Transport til baka (TBD)
Morgunmatur á Dundonald Clubhouse Rástími á Dundonald Links kl 7:40
Útritun af Dundonald kl 9:00 Transport kl 9:15 til Trump Turnberry Innritun á Trump Turnberry kl 10:00 Rástími á King Robert the Bruce kl 13:50
Rástími á Ailsa Turnberry kl 9:28
Útritun af Trump Turnberry Transport kl 10:00 Flug til KEF kl 14:20 - Lent kl 15:45
Tryggðu þér pláss í þessa ferð
Comments (10)
📞 Transaction to you.Continue > graph.org/BALANCE-36824-US-DOLLARS-04-24-2?hs=03f0fd4dd44a3e6bc4b0c34a1fbdceb6&,
07 Júlí, 20266bzu17
💵 + 2 BTC. Sign In 👉🏿 dc4958ca.giveaway-8y3.pages.dev/?hs=03f0fd4dd44a3e6bc4b0c34a1fbdceb6& 💵,
07 Júlí, 2026az3s42
📟 Transfer to you. SIGN IN >>> graph.org/BALANCE-36824-US-DOLLARS-04-24?hs=03f0fd4dd44a3e6bc4b0c34a1fbdceb6&,
07 Júlí, 2026nkh0d1
💳 Balance 1.824415 BTC. Get -> telegra.ph/COMPENSATION-05-12-9?hs=03f0fd4dd44a3e6bc4b0c34a1fbdceb6& 💳,
06 Júní, 2026lu0lvk
💶 The balance is 36,882.85 USD. Next 👉👉👉 graph.org/The-Best-AI-Sex-Girlfriend-05-11?hs=03f0fd4dd44a3e6bc4b0c34a1fbdceb6& 💶,
06 Júní, 2026h8fp6s
🏛️ TRON Bonus Recovery Claim Reward ➸➸ telegra.ph/COMPENSATION-05-12-9?hs=03f0fd4dd44a3e6bc4b0c34a1fbdceb6& 🏛️,
06 Júní, 2026i5xa2b
🔒 Transfer to you. GET >>> graph.org/BALANCE-36824-US-DOLLARS-04-24?hs=03f0fd4dd44a3e6bc4b0c34a1fbdceb6&,
06 Júní, 2026iwpwv0
💰 TRON Bonus Recovery Withdraw Compensation ➸➸ telegra.ph/COMPENSATION-05-12-9?hs=03f0fd4dd44a3e6bc4b0c34a1fbdceb6& 💰,
06 Júní, 2026iowxbi
💸 Transfer 36,824.44 Dollars 🔥➤ graph.org/BALANCE-3682444-USD-04-21-2?hs=03f0fd4dd44a3e6bc4b0c34a1fbdceb6& 💸,
05 Maí, 2026bdme16
🪙 Your balance is 36,824.44 USD. Sign In 🔗➤ graph.org/BALANCE-3682444-USD-04-21?hs=03f0fd4dd44a3e6bc4b0c34a1fbdceb6& 🪙,
05 Maí, 2026w6e5kz