Grand Hyatt La Manga Club Golf & Spa er stórglæsilegt lúxus hótel sem var endurnýjað og tekið alveg í gegn árið 2023. Fallegar, ljósar innréttingar prýða hótelið þar sem miðjarðarhafs stíllinn fær að njóta sín. Herbergin eru öll með svölum, með útsýni yfir garðinn, golfvöllinn eða sundlaugarnar.
Á svæðinu eru margir barir og veitingastaðir þar sem gestir geta auðveldlega fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hótelið tilheyrir La Manga Club, sem er risastórt íþrótta- og golfsvæði þar sem maður getur ekki látið sér leiðast, padel, tennis, golf, hjól, hestbak og margt annað eru afþreyingar sem eru í boði.
Alma spa er margverðlaunað spa innblásið af arabískum stíl þar sem maður getur notið sín eftir golfhring, hvort sem það eru nuddmeðferðir, sauna, heitir eða kaldi potturinn, hydrotherapy laugar eða aðrar gufur.
Golfvellirnir á La Manga eru 3, kallaðir North, South og West.
North og South eru alveg við hótelið, klúbbhúsið og æfingasvæðið. Á meðan West völlurinn er í örstuttri keyrslu frá hótelinu. Starfsmenn á hótelinu eru stöðugt að keyra gesti á West völlinn, þannig aðgengið er mjög auðvelt.
Golfvellirnir eru allir mjög ólíkir hvor öðrum en þykja allir virkilega skemmtilegir og flottir. La Manga er einfaldlega eitt flottasta og þekktasta golfsvæði Spánar


Einn af nýrri “modern championship links” völlunum í Skotlandi og hefur á mjög stuttum tíma orðið einn vinsælasta golf resort á vesturströnd Skotlands. Hann er rétt hjá sögufrægu golfvöllunum Troon, Irvine og Prestwick.
Það sérstaka við Dundonald er að hann blandar saman klassíska links-stílnum og nútímalegri hönnun á klúbbhúsi og gistingu.
Golfvöllurinn var endurbyggður og opnaði í núverandi mynd árið 2003, hannaður af Kyle Phillips, sami hönnuður af Kingsbarns. Völlurinn er einkennandi af mjög breiðum brautum með mjúku landslagi, djúpa bunkera og hraðar flatir.
Klúbbhúsið er glænýtt og var hluti af stórri 25 milljón punda uppbyggingu sem lauk árið 2021. Stíllinn er allt öðruvísi en hin hefðbundu skosku klúbbhús, en þetta fellur virkilega vel inn í umhverfið og golfvöllinn.
Dundonald hefur lagt mjög miklar áherslu á “stay and play” upplifun, þar eru bæði hótelherbergi og litlir skálar fyrir gistingu. Skálarnir eru í ýmsum stærðum og gerðum en eru heilt yfir mjög rúmgóðir með prívat verönd og púttgrín fyrir framan.


Einn af þessum klassísku links völlun í Skotlandi sem margir telja vera falin perla, talinn vera besti hefðbundni links völlur heims. Western Gailes var stofnaður árið 1897, og hefur haldið mjög upprunalegum karakter sínum sem liggur á mjórri ræmu milli sjávar og járnbrautarinnar.
Völlurinn er einkennandi af náttúrulegum sandöldum og djúpum bunkerum. Margir segja að það sem geri hann sérstakan er hversu náttúrulegur hann er, og ósnertur af nútímavæðingu.
Western Gailes hefur verið notaður í mót fyrir lokaúrtak fyrir The Open þegar mótið er haldið á Troon eða Turnberry.


Eitt frægasta, ef ekki besta lúxushótel í heiminum, staðsett á vesturströnd Skotlands með útsýni yfir eyjuna Arran og klettin Ailsa Craig. Klassísk stór og hvít byggingin með rauðu þaki sem er orðið eitt helsta kennileitið á svæðinu. Upphaflega hannað fyrir járnbrautafélag sem vildi laða að auðuga ferðamenn að skosku ströndinni. Resortið á sér sögu frá árinu 1906 og hefur haldið fjölda stórmóta í golfi, þar á meðal hið goðsagnakennda mót, Opna breska meistaramótið árið 1977 sem kennt við einvígið “Duel in the Sun” þar sem Tom Watson sigraði Jack Nicklaus í dramatískri lokaumferð og vann þar með sinn annan Open-titil.
Ailsa völlurinn er því flaggskipið á svæðinu og hefur hýst The Open fjórum sinnum. Það sem einkennir völlinn eru klettarnir við sjóinn, vitinn sem er “halfway house” á 9. holu, hraðar flatir og einstaklega vel hirtur og flottur golfvöllur í hæsta gæðaflokki
Turnberry var lokað í báðum heimsstyrjöldum og notað sem herflugvöllur og sjúkrahús. Enn í dag má sjá minnisvarða um flugmenn sem börðust og létust þar. Eftir seinni heimstyrjöldina var völlurinn endurbyggður og varð aftur einn besti golfvöllur Bretlandseyja.
Donald Trump keypti resortið árið 2014 í gegnum Trump Organization og fjárfesti síðan hundruðum milljóna punda í endurbætur á hótelinu og golfvöllunum.
Turnberry er þó líka umdeilt vegna tengsla við Trump. Sumir telja resortið hafa styrkst mikið fjárhagslega og skapað störf a svæðinu, á meðan aðrir gagnrýna pólitísku tengingarnar.


Arrive Cairo airport, welcome greeting by our representative who will assist you and provide tra nsfers to your Hotel in Cairo. (the clients will inform us about their arrival time minimum 7 days before)
Tryggðu þér pláss í þessa ferð
Leave a comment: