Heilsuferð með Karitas Maríu - eaglegolf.is

Quinta Marinha

Cascais, Portúgal

cb3123ca-8a86-40f9-91c8-cb2b9287b4c4

Karitas María Lárusdóttir

Hin alkunnuga leikfimisdrottnig verður þjálfari og fararstjóri í þessari stórskemmtilegu Heilsu- og Vellíðunarferð í Portúgal!

Námskeiðið er í formi æfinga og fyrirlestra, sem hentar bæði byrjendum og þeim sem eru lengra komnir.

 

Quinta Marinha, og bærinn Cascais eru þekkt fyrir að vera heilsu áfangastaðir þar sem allskonar íþróttir og keppnir fara fram, eins og hinn frægi Járnmaður.

Svæðið býður upp á ýmsa möguleika til afþreyinga, eins og hjól, hlaup, sund, golf og margt fleira.

 

* Dagskrá ferðarinnar er neðar á síðunni

 

 

 

Verð frá 249.000kr per farþega

Innifalið í verð: Flogið til Lissabon með Play. Ferðataska, golfsett og persónulegur hlutur. Gisting með morgunmat, flutningur, þjálfun, studio, fyrirlestrar, íslensk fararstjórn og ótakmarkað golf.
ATH golfbíll er ekki innifalinn, hægt að bóka gegn greiðslu

Dagsetningar 2024

27. sept - 4. okt
30. sept - 4. okt

Hótelið

Frábært hótel sem var endurbætt árið 2020.

Öll herbergi eru með svölum og koma í mismunandi gerðum.

Spa, inni- og útisundlaug.

2x veitingastaðir á hótelinu og bar.

Golfvöllur alveg við hótelið, 1. og 18. hola kæmist ekki nær!

Völlurinn

Stórkostlegur 18 holu völlur hannaður af Robert Trent Jones.

Par 71 sem er 4700m af rauðum teigum, og 5600m af gulum teigum.

Hola 1, 9, 10 og 18 alveg við hótelið, og oft er gaman að vera í sundlauginni eða á bakkanum með svalandi drykk og sjá kylfinga klára leik sinn.

Aðrir golfvellir

Penha Longa

3x golfvellir með miklu landslagi, 15 mínúta akstursfjarlægð

Oitavos Dunes

Frábær völlur í 3 mínútna akstursfjarlægð. Þarna Cristiano Ronaldo að byggja húsið sitt!

Cascais

Gullfallegur 200.000 manna bær sem er einungis í 5 mínútna akstursfjarlægð frá hótelinu. Cascais býður upp á frábært úrval af börum, veitingastöðum og búðum. Ásamt ströndum, bátahöfnum og fallegum byggingum sem enginn má láta framhjá sér fara.

Veitingastaðir og barir

 

Á hótelinu er 2x veitingastaðir, svo er annar flottur Japanskur staður í 3 mínútna göngufjarlægð. Rétt hjá hótelinu er kraftmikla Atlantshafið sem skellist á dramatíska kletta, inn á milli klettanna eru fallegar strendur þar sem sumar skarta litlum strandbörum og veitingastöðum. 

Svo er bærinn Cascais með urmul af stöðum, allt ódýrt, matur og vín!

Annað

 

Fullt af afþreyingum og skemmtunum í boði eins og:

Bátsferðir

Vínsmökkun

Surf

Hestbak

Fjallgöngu- og hjólaferðir

Skoðunarferðir

Dagskrá ferðar

* með fyrirvara um breytingar

 

Dagur 1.
27. september 

Flug með Play til Lissabon 14:50 – 20:20. 
Á flugvellinum býður okkar rúta sem keyrir okkur á hótelið í Quinta Marinha.
Hittingur á hótelbarnum og farið verður yfir dagskrá ferðarinnar og þátttakendur fá fallega gjafapoka. 
 
Dagur 2.
28. september 
Morgunmatur 07:00-10:30
Pilates æfing í hótelgarðinum 08:30-9:30
Gönguferð um svæðið 12:30 
Sameiginlegur kvöldverður á Yakuza by Olivier, Cascais
 
Dagur 3.
29. september 
Morgunmatur 07:00-10:30
Hiit pilates æfing í hótelgarðinum 11:00-12:00
Skokk og æfingar 12:30-13:30
 
Dagur 4.
30. september  
Morgunmatur 07:00-10:30
Morgunskokk/ganga um svæðið og niður á strönd 10:00-12:00 
 
* Nokkrir nýjir bætast í hópinn. Hittingur á hótelbarnum, farið verður yfir dagskrá ferðarinnar og þátttakendur fá fallega gjafapoka.*
 
Dagur 5.
1. október
Morgunmatur 07:00-10:30
Pilates og barre æfing í studio Quinta da Marinha Clube  09:00-10:00
Fyrirlestur 10:00 
Bátsferð 15:30-17:30 – ekki innifalið í verðinu. 
 
Dagur 6.
2. október 
Morgunmatur 7:00-10:30
Skokk og Barre æfing 10:00-11:00
Ganga og dinner 18:00 
 
Dagur 7.
3. október 
Morgunmatur 07:00-10:00
Morgunæfing niður á strönd – skokkað/labbað á strönd og tilbaka 9:00-11:00 
Fyrirlestur 
 
Dagur 8.
4. október 
Heimferðadagur
Frjáls dagur 
Rúta sækir okkur á hótelið 17:30
Flug með Play 21:20 áætluð lending 00:50

Aðrar Myndir

Forvitin/n?

Einhverjar spurningar?

Sendu á okkur línu og við svörum þér um hæl!