Quinta Marinha - eaglegolf.is

Quinta Marinha

Cascais, Portúgal

Verð frá 245.000kr per farþega

Innifalið í verð: Flogið til Lissabon með Play. Ferðataska, golfsett og persónulegur hlutur. Gisting með morgunmat, flutningur, íslensk fararstjórn og ótakmarkað golf.
ATH golfbíll er ekki innifalinn, hægt að bóka gegn greiðslu

Dagsetningar 2024
VORIÐ UPPSELT

20. - 27. september
20. - 30. september
27. september - 4. október
27. september - 7. október

Hótelið

Frábært hótel sem var endurbætt árið 2020.

Öll herbergi eru með svölum og koma í mismunandi gerðum.

Spa, inni- og útisundlaug.

2x veitingastaðir á hótelinu og bar.

Golfvöllur alveg við hótelið, 1. og 18. hola kæmist ekki nær!

Völlurinn

Stórkostlegur 18 holu völlur hannaður af Robert Trent Jones.

Par 71 sem er 4700m af rauðum teigum, og 5600m af gulum teigum.

Hola 1, 9, 10 og 18 alveg við hótelið, og oft er gaman að vera í sundlauginni eða á bakkanum með svalandi drykk og sjá kylfinga klára leik sinn.

Aðrir golfvellir

Penha Longa

3x golfvellir með miklu landslagi, 15 mínúta akstursfjarlægð

Oitavos Dunes

Frábær völlur í 3 mínútna akstursfjarlægð. Þarna Cristiano Ronaldo að byggja húsið sitt!

Cascais

Gullfallegur 200.000 manna bær sem er einungis í 5 mínútna akstursfjarlægð frá hótelinu. Cascais býður upp á frábært úrval af börum, veitingastöðum og búðum. Ásamt ströndum, bátahöfnum og fallegum byggingum sem enginn má láta framhjá sér fara.

Veitingastaðir og barir

 

Á hótelinu er 2x veitingastaðir, svo er annar flottur Japanskur staður í 3 mínútna göngufjarlægð. Rétt hjá hótelinu er kraftmikla Atlantshafið sem skellist á dramatíska kletta, inn á milli klettanna eru fallegar strendur þar sem sumar skarta litlum strandbörum og veitingastöðum. 

Svo er bærinn Cascais með urmul af stöðum, allt ódýrt, matur og vín!

Annað

 

Fullt af afþreyingum og skemmtunum í boði eins og:

Bátsferðir

Vínsmökkun

Surf

Hestbak

Fjallgöngu- og hjólaferðir

Skoðunarferðir

Aðrar Myndir

Forvitin/n?

Einhverjar spurningar?

Sendu á okkur línu og við svörum þér um hæl!